23 maí 2024

Sameiginlegt lið Þórs Þ. og Hamars í 12.flokki kvenna hampaði Íslandsmeistaratitli 18.maí síðastliðinn eftir sigur á KR. Þór Þ./Hamar unnu fyrsta leikinn á Meistaravöllum og tryggðu sér svo titilinn með sigri í öðrum leik sem fór fram í Icelandic Glacial höllinni. Leikurinn fór 65-56 í æsispennandi leik. Þjálfari liðsins er Hákon Hjartarson. 

Hildur Björk Gunnsteinsdóttir var valin verðmætasti leikmaður úrslitanna, en hún skilaði að meðaltali 17 stigum, 8 fráköstum og 3,5 stoðsendingum í úrslitaeinvíginu.

Til hamingju Þór Þ./Hamar!