23 maí 2024

Stjarnan varð Íslandsmeistari í 10.flokki drengja 17.maí síðastliðinn með sigri á Val. Stjörnudrengir unnu fyrsta leikinn í Umhyggjuhöllinni og tryggðu sér svo titilinn með sigri í öðrum leik sem fór fram á Hlíðarenda. Leikurinn á Hlíðarenda fór 68-97. Þjálfari liðsins er Leifur Steinn Árnason. 

Pétur Harðarson var valinn verðmætasti leikmaður úrslitanna, en hann skilaði að meðaltali 24 stigum, 5 fráköstum og 4,5 stoðsendingum.

Til hamingju Stjarnan!