23 maí 2024
Keflavík er Íslandsmeistari í Subway deild kvenna árið 2024. Þær unnu sannfærandi sigur á Njarðvík í gærkvöldi í þriðja leik einvígsins. Leikurinn fór 72-56. Keflavík er einnig deildarmeistari ásamt því að þær unnu VÍS bikarinn á tímabilinu. Það má með sanni segja að Keflavík sé með besta kvenna liðið á Íslandi í dag.
Reykjanesbær og Subway á Íslandi gáfu sitthvora milljónina í sigurverðlaun.
Sara Rún Hinriksdóttir var valin verðmætasti leikmaður úrslitanna, en hún skilaði 21,7 stigum, 5,7 fráköstum og 2,7 stoðsendingum í einvíginu.
Til hamingju Keflavík!