![ÍR b meistari 4. deildar 10. flokks drengja](/library/Myndir/islandsmeistarar-2024/10fldr_4d_IRb_2024.jpg)
6 maí 2024
ÍR b varð meistari 4. deildar 10. flokks drengja á sunnudag með sigri á Val b í úrslitaleik á Ásvöllum í Hafnarfirði. Eftir jafnan fyrri hálfleik tók ÍR öll völd og vann að lokum öruggan sigur.
Hörður Wehmeier var valinn maður leiksins, en hann skilaði 18 stigum, 4 stoðsendingum, 3 fráköstum og 2 stolnum bolum.
Til hamingju ÍR b!