![Grindavík meistari 2. deildar 12. flokks kvenna](/library/Myndir/islandsmeistarar-2024/12flkvk_2d_Grindavik_2024.jpg)
6 maí 2024
Grindavík varð meistari 2. deildar 12. flokks kvenna á sunnudag með sigri á Þór Ak. í úrslitaleik á Meistaravöllum. Leikurinn var lengst af jafn og Grindavík tryggði sér sigurinn með körfu 17 sekúndum fyrir leikslok.
Elín Bjarnadóttir var valin maður leiksins, en hún skilaði 23 stigum, 8 fráköstum, 4 stoðsendingum og 6 stolnum boltum.
Til hamingju Grindavík!