4 maí 2024Á morgun, sunnudaginn 5. maí, hefjast lokaúrslit 1. deildar karla þegar ÍR og Sindri leika um laust sæti í efstu deild karla að ári. KR tryggði sér sigur í deildarkeppninni og fór beint upp en næstu lið á eftir léku um hitt sætið sem í boði er.
ÍR er með heimavallarréttinn og því fer fyrsti leikurinn fram í Skógarselinu og síðan leika liðin til skiptis á Höfn og í Skógarselinu þar til annað liðið hefur tryggt sér þrjá sigra í seríunni.
(2) ÍR – (4) Sindri
Leikur 1 5. maí 19:15 ÍR – Sindri
Leikur 2 9. maí 19:15 Sindri – ÍR
Leikur 3 12. maí 19:15 ÍR – Sindri
Leikur 4* 15. maí 19:15 Sindri – ÍR *ef með þarf
Leikur 5* 18. maí 19:15 ÍR – Sindri *ef með þarf