3 maí 2024

Fyrri úrslitahelgi neðri deilda yngri flokka fer fram núna um helgina, en leikið verður á sex stöðum, Ásvöllum, Blue höllinni, Dalhúsum, Ljónagryfjunni, Meistaravöllum og Vallaskóla.

Undanúrslitaleikir fara fram á föstudag og laugardag og úrslitaleikir á sunnudag.

Lifandi tölfræði verður frá úrslitaleikjum, en hana verður hægt að nálgast hér á heimasíðu KKÍ.

Ásvellir

Undanúrslit og úrslit 2. deildar 9. flokks drengja og 4. deildar 10. flokks drengja verða leikin á Ásvöllum.
9.fl.dr. 2. deild  (2) Hamar - (3) Haukar
9.fl.dr. 2. deild  (1) Njarðvík - (4) Valur
10.fl.dr. 4. deild (1) ÍR b - (4) ÍA
10.fl.dr. 4. deild (2) Valur b - (3) Haukar b

Blue höllin

Undanúrslit og úrslit 2. deildar 12. flokks karla verða leikin í Blue höllinni.
12.fl.kk. 2. deild (1) ÍA - (4) Breiðablik
12.fl.kk. 2. deild (2) Selfoss b (3) Keflavík

Dalhús

Undanúrslit og úrslit 3. deildar 9. flokks drengja og 2. og 3. deildar 10. flokks drengja verða leikin í Dalhúsum. Þar mætast.
9.fl.dr. 3. deild  (2) ÍA-(3) Höttur
9.fl.dr. 3. deild  (1) Tindastóll - (4)KR b
10.fl.dr. 2. deild (2) Stjarnan b - (3) Breiðablik
10.fl.dr. 2. deild (1) Höttur - (4) Sindri
10.fl.dr. 3. deild (2) Snæfell - (3) Afturelding
10.fl.dr. 3. deild (1) Laugdælir/Hrunamenn - (4) Þór Þ./Hamar

Ljónagryfjan

Undanúrslit og úrslit 2. deildar 9. flokks stúlkna verða leikin í Ljónagryfjunni. Þar mætast:
9.fl.st. 2. deild (2) Njarðvík - (3)Valur
9.fl.st. 2. deild (1) ÍR - (4) Vestri

Meistaravellir

Undanúrslit og úrslit 2. deildar 12. flokks kvenna verða leikin á Meistaravöllum. Þar mætast:
12.fl.kvk. 2. deild (1) Grindavík - (4) Breiðablik
12.fl.kvk. 2. deild (2) KR b - (3) Þór Ak.

Vallaskóli

Undanúrslit og úrslit 2. deildar ungmennaflokks karla verða leikin í Vallaskóla. Þar mætast:
U.fl.kk. 2. deild (2) Skallagrímur - (3) Tindastóll
U.fl.kk. 2. deild (1) Hrunamenn/Selfoss - (4) Þór Ak.