![Íslandsmót 3x3 næstu helgi | dagskrá](/library/Myndir/3X3/3x3%20Selfoss%20-%20banner%20-%20Copy%20(1).jpg)
18 okt. 2023
Fyrsta Íslandsmótið í 3x3 verður leikið næstu helgi í Vallaskóla í umsjón Selfyssinga. Alls eru 16 lið skráð til leiks, 12 lið drengja og fjögur lið stúlkna. Búist er við miklu fjöri og skemmtilegu móti, en krýndir verða Íslandsmeistarar hjá U14-U15 drengjum, U14-U15 stúlkum og U16 drengjum. Leikjadagskrá hefur verið send út á skráð lið, en er einnig hægt að sjá hér neðar í fréttinni.