![Spá Subway og 1. deild karla | tímabilið 2023-2024](/library/Myndir/subway/Subkk_23-24.png)
28 sep. 2023Spá fyrir Subway og 1. deildir karla var kynnt núna í hádeginu á Grand Hótel. Forsvarsmenn liða í 1. deild karla gera ráð fyrir að KR vinni sér öruggt sæti í Subway deild karla, og að sama skapi er Tindastól spáð Íslandsmeistaratitlinum vorið 2024.
SUBWAY DEILD KARLA
Fjölmiðlaspá
Samkvæmt spá fjölmiðla verður það lið Tindastóls sem hampar Íslandsmeistaratitlinum á komanda vori, þó ekki muni miklu í spánni á þeim og Val. Það verður hlutskipti Breiðabliks og nýliða Hamars að falla niður í 1. deild karla.![](/library/Myndir/Subkk_fjolmidlaspa.png?proc=AlbumMyndStor)
Spá formanna, þjálfara og fyrirliða
Það verður Tindastóll sem hampar þeim stóra næsta vor, gangi spá félaganna eftir. Það mun verða hlutskipti Hamars og Breiðabliks að falla niður í 1. deild.![](/library/Myndir/Subkk_spa.png?proc=AlbumMyndStor)
Gangi spáin eftir þá lítur úrslitakeppnin svona út.
![](/library/Myndir/Subkk_urslitakeppni.png?proc=AlbumMyndStor)
1. DEILD KARLA
Það verður hörð barátta á toppi 1. deildar karla, en þó telja félögin að KR sé sigurstranglegast og muni endurheimta sæti sitt í Subway deild karla. Það verða liðin í 2.-9. sæti sem munu berjast um hitt lausa sætið í Subway deildinni.![](/library/Myndir/1dkk_spa.png?proc=AlbumMyndStor)
Hægt er að skoða alla kynninguna hérna, en þar er hægt að sjá hvernig atkvæðin skiptust niður á lið. Spá Subway og 1. deild karla by Snorri Örn Arnaldsson