26 sep. 2023
Í kvöld hefst keppni í Subway deild kvenna þetta tímabilið með fjórum leikjum. Á Akureyri er sannkallaður nýliðaslagur þegar Þór Ak. tekur á móti Stjörnunni, en sá leikur hefst kl. 18:15. Aðrir leikir kvöldsins hefjast kl. 19:15, en þeir eru Grindavík-Fjölnir, Breiðablik-Valur og Haukar-Snæfell. Á morgun er svo leikur Njarðvíkur og Keflavíkur, en þeim liðum var einmitt spáð tveimur efstu sætum Subway deildarinnar þetta tímabilið.
Sjáumst á vellinum!