17 maí 2023
Keflavík varð Íslandsmeistari ungmennaflokks kvenna á sunnudag með sigri á sameiginlegu liði Vals og KR í úrslitaleik í Blue höll Keflavíkur. Leikurinn var jafn mest allan tímann og skiptust liðin átta sinnum á forystunni. Keflavík hafði svo betur þegar upp var staðið, 66-69. Þjálfari liðsins er Lidia Mirchandani Villar.
Erna Ósk Snorradóttir var valin maður leiksins, en hún skilaði 21 stigi og 4 fráköstum.
Til hamingju Keflavík!