14 maí 2023

Úrslitaviðureign 12. flokks karla hefst í dag þegar ÍR tekur á móti Breiðablik. Viðureignin er nýlunda í keppnishaldi yngri flokka, en þetta er í fyrsta sinn þar sem leikin er sería til úrslita um Íslandsmeistaratitil yngri flokka. Í þessari seríu þarf að vinna tvo leiki til að standa uppi sem Íslandsmeistari.