12 maí 2023

Úrslitaleikir eldri yngri flokka hefjast í dag, en úrslitaleikirnir fara fram dagana 12.-16. maí í Blue höll Keflavíkur og á Meistaravöllum hjá KR. Leikið verður í 9. flokki og eldri, þar sem lið í 1. deildum kljást um Íslandsmeistaratitla, en lið í neðri deildum um meistaratitil viðkomandi deildar. Hægt verður að horfa á beint streymi af leikjunum í Blue höllinni á https://keftv.is/beint/ og frá Meisaravöllum á https://www.youtube.com/@krbasket7603. Hægt er að sjá leikjaniðurröðun allra leikja á mótavef KKÍ https://kki.is/motamal/leikir-og-urslit/motayfirlit/.