12 maí 2023

Haukar tryggðu sér Íslandsmeistaratitil 8. flokks stúlkna í lokamóti flokksins á Ásvöllum í Hafnarfirði um helgina. Haukar tryggði sér sigurinn með sigri á Stjörnunni í lokaleik A riðils, 35-31, en höfðu áður unnið gegn Ármanni og Keflavík, en tapað gegn Fjölni. Stjarnan vann silfrið, en þær unnu þrjá leiki af fjórum. Til hamingju Haukar!