10 maí 2023

Stjarnan tryggði sér Íslandsmeistaratitil minnibolta 11 ára stúlkna í lokamóti flokksins í Glerárskóla á Akureyri um helgina. Stjarnan tryggði sér sigurinn með sigri á Val í lokaleik A riðils, 26-21, en höfðu áður unnið gegn Hrunamönnum, Aþenu/Leikni/UMFK og Grindavík en tapað gegn Njarðvík. Valur vann silfrið, en þær unnu fjóra leiki af fimm. Til hamingju Stjarnan!