10 maí 2023

Stjarnan tryggði sér Íslandsmeistaratitil 8. flokks drengja í lokamóti flokksins í Umhyggjuhöllinni í Garðabæ um helgina. Stjarnan tryggði sér sigurinn með sigri á Fjölni í lokaleik A riðils, 55-47, en höfðu áður unnið gegn KR, Aftureldingu og Grindavík. Fjölnir vann silfrið, en þeir unnu þrjá leiki af fjórum. Til hamingju Stjarnan!