10 maí 2023KKÍ og íþróttafræði HR auglýsa kostaða meistaranámsstöðu: KOSTUÐ MEISTARANÁMSSTAÐA - KARALANDSLIÐ

Laus er til umsóknar námsstaða í meistaranámi í íþróttavísindum og þjálfun (MSc) við íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík.
Staðan eru kostuð af Háskólanum í Reykjavík (HR) og Körfuknattleikssambandi Íslands (KKÍ) og munu nemandi ekki greiða skólagjöld meðan á námstíma stendur.

Umsóknarfrestur er til 15. maí og mun nemandi hefja nám strax á haustönn, samkæmt skóladagatali. Skuldbindingar nemanda eru eftirfarandi:

- Nemandi skuldbindur sig til að gera meistaraverkefni sem tengist líkamlegri getu leikmanna karlalandsliða Íslands í körfuknattleik. Nemandi skrifar lokaritgerð í nánu samstarfi við leiðbeinanda (akademískan starfsmann HR), þjálfarateymi landsliðsins og KKÍ. Nemandi skuldbindur sig jafnframt til þess að kynna niðurstöður meistaraverkefnisins samkvæmt óskum KKÍ.
- Nemandi skuldbindur sig til þess að sjá um mælingar á landsliðum karla í körfuknattleik undir handleiðslu þjálfarateymis landsliðanna og kennara íþróttafræðisviðs HR á meðan námstíma stendur.
- KKÍ og þjálfarateymi þeirra geta óskað eftir því að nemandi sjái um ráðgjöf er varðar líkamlega þjálfun fyrir leikmenn karlalandsliða Íslands. Slík ráðgjöf yrði alltaf í nánu samstarfi við þjálfarateymi og undir handleiðslu kennara íþróttafræðideildar HR.
- Nemandi leitast eftir því að vinna eins mörg verkefni á námstíma og mögulegt er í tengslum við karlalandsliðin og veita þjálfarateymi aðgang að verkefnum sínum. Dæmi um slíkt væri að gera frammistöðugreiningu á A-landsliðið karla í námskeiðinu Frammistöðugreining í íþróttum.
- Nemandi skuldbindur sig til að halda eðlilegri námsframvindu og mæta samviskusamlega í kennslustundir ásamt því að taka þátt í kynningarstarfi á vegum HR sé þess óskað. Dæmi um slíkt væri viðvera á Háskóladeginum.


Umsóknarfrestur er til 15. maí nk.

Umsóknir og fyrirspurnir skulu berast á tölvupósti til:
hafrunkr@ru.is og hjaltio@ru.is