![Breiðablik Íslandsmeistari MB11 ára drengja](/library/Myndir/islandsmeistarar-2023/MB11dr_islandsmeistari_2023_Breidablik.png)
10 maí 2023
Breiðablik tryggði sér Íslandsmeistaratitil minnibolta 11 ára drengja í lokamóti flokksins í Glerárskóla á Akureyri um helgina. Breiðablik tryggði sér sigurinn með sigri á Stjörnunni í lokaleik A riðils, 32-25, en höfðu áður unnið gegn Selfossi, Þór Þ./Hamar, Stjörnunni b og Sindra. Stjarnan vann silfrið, en þeir unnu þrjá leiki af fimm. Til hamingju Breiðablik!