1 maí 2023Skallagrímur tryggði sér Íslandsmeistaratitil minnibolta 10 ára stúlkna í lokamóti flokksins á Flúðum um helgina. Skallagrímur tryggði sér sigurinn með sigri á Grindavík í lokaleik A riðils, 29-15, en höfðu áður unnið gegn Þór Þ./Hamar, Tindastól, Keflavík og Val. Grindavík vann silfrið, en þær unnu fjóra leiki af fimm. Til hamingju Skallagrímur!