![Grindavík Íslandsmeistari minnibolta 10 ára drengja](/library/Myndir/islandsmeistarar-2023/MB10dr_islandsmeistarar_2023_Grindavik.jpg)
1 maí 2023
Grindavík tryggði sér Íslandsmeistaratitil minnibolta 10 ára drengja í lokamóti flokksins í Umhyggjuhöllinni um helgina. Grindavík tryggði sér sigurinn með sigri á Stjörnunni í lokaleik A riðils, 28-26, en höfðu áður unnið gegn Skallagrím, Sindra, Breiðablik og Keflavík. Stjarnan vann silfrið, en þeir unnu fjóra leiki af fimm. Til hamingju Grindavík!