1 maí 2023Frá dómaranefnd KKÍ: Í ljósi ummæla þjálfara Þórs frá Þorlákshöfn vegna atviks úr þriðja leik Vals og Þórs vill dómaranefnd KKÍ koma því á framfæri að allir þeir sem um þetta mál hafa fjallað á vegum nefndarinnar, innlendir sem erlendir aðilar, hafa komist að þeirri sömu niðurstöðu að atvikið verðskuldi ekki brottrekstur.