![Hamar tryggði sér sæti í Subway deild karla](/library/Myndir/islandsmeistarar-2023/Hamar_1dkk_2023%20-%20Copy%20(1).png)
25 apr. 2023
Hamar tryggði sér sæti í Subway deild karla á næsta keppnistímabili eftir sigur á Skallagrím í oddaleik fyrir fullu húsi í Hveragerði í gærkvöldi. Áður hafði Álftanes tryggt sér öruggt sæti í úrvalsdeild með því að vinna 1. deildina, en Hamar færist einnig upp um deild með því að sigra umspilið um laust sæti.