![Stjarnan Íslandsmeistari 7. flokks stúlkna](/library/Myndir/islandsmeistarar-2023/7flst_islandsmeistarar_2023_Stjarnan.jpg)
24 apr. 2023
Fyrstu Íslandsmeistaratitlar þessa tímabils voru veittir um helgina þegar lokaumferð 7. flokks var leikin. 7. flokkur stúlkna lék í Blue höll Keflavíkur, en þar hafði Stjarnan sigur í öllum fjórum leikjum helgarinnar, gegn Val 56-23, gegn Haukum 35-22, gegn Grindavík 36-17 og gegn Keflavík 31-27. Keflavík vann silfrið, en þær unnu þrjá leiki af fjórum. Til hamingju Stjarnan!