![Grindavík Íslandsmeistari 7. flokks drengja](/library/Myndir/islandsmeistarar-2023/7fldr_islandsmeistarar_2023_Grindavik.png)
24 apr. 2023
Fyrstu Íslandsmeistaratitlar þessa tímabils voru veittir um helgina þegar lokaumferð 7. flokks var leikin. 7. flokkur drengja lék í Umhyggjuhöll Stjörnunnar, en þar hafði Grindavík sigur í öllum fjórum leikjum helgarinnar, gegn KR 60-28, gegn Haukum 46-37, gegn Breiðablik 52-39 og gegn Stjörnunni 54-37. Breiðablik vann silfrið, en þeir unnu þrjá leiki af fjórum. Til hamingju Grindavík!