20 apr. 2023

Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í tveimur agamálum sem henni hafði borist til úrlausnar.

82/2022-2023

Með vísan til ákvæðis d. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál, skal hinn kærði, Gabríel Hugi Kristjánsson, leikmaður Selfoss, sæta þriggja leikja banni vegna háttsemi sinnar í leik Hauka B og Selfoss B í 11. flokki kk, sem leikinn var þann 31. mars 2023. 

83/2022-2023

Með vísan til ákvæðis d. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál, skal hinn kærði, Óskar Erik Jónsson, leikmaður Hauka, sæta þriggja leikja banni vegna háttsemi sinnar í leik Hauka B og Selfoss B í 11. flokki kk, sem leikinn var þann 31. mars 2023.