17 apr. 2023
Þróttur V. höfðu sigur í úrslitaeinvígi 2. deildar karla síðasta föstudag og tryggðu sér þar með sæti í 1. deild karla fyrir 2023-2024 leiktíðina. Þróttarar fóru taplausir í gegnum leiktíðina, en þeir unnu alla 20 leiki sína í deildarkeppni 2. deildar og alla þrjá leikina í úrslitakeppninni. Til hamingju Þróttur V.!