8 mar. 2023

Búið er að birta dagskrá og þær þingtillögur sem borist hafa til KKÍ fyrir Körfuknattleiksþing 2023 á heimasíðu KKÍ. Hægt er að nálgast dagskrána og tillögurnar hérna.

Mánudaginn 20. mars kl. 17:00 verður haldinn annar undirbúningsfundur fyrir Körfuknattleiksþingið. Fundurinn verður einungis í boði sem fjarfundur að þessu sinni, en fundarboð verður sent út á næstu dögum. Markmið fundarins er að gera þingstörfin markvissari.

Öllum fyrirspurnum vegna Körfuknattleiksþings 2023 skal beina til kki@kki.is.