2 mar. 2023

Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í fjórum agamálum sem henni hafði borist til úrlausnar.

 

Agamál 62/2022-2023

Með vísan til ákvæðis c. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Björn Ásgeir Ásgeirsson, sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik Hamars og ÍA, 1. deild karla, sem fram fór þann 17. febrúar 2023.

Agamál 63/2022-2023

Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Marko Jurica, leikmaður Vestra, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Vestra gegn Þrótti Vogum, sem fram fór þann 19 febrúar 2023.

Agamál 64/2022-2023

Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Lars Erik Bragason, leikmaður KR, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik ÍR gegn KR, sem fram fór þann 26 febrúar 2023.

Agamál 65/2022-2023

Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Þórður Ingibjargarson, leikmaður Fjölnis, sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik Laugdælir gegn Fjölnir b, sem fram fór þann 26 febrúar 2023.