24 feb. 2023

Minnt er frest til að skila tillögum fyrir Körfuknattleiksþing 2023. Eins og fram kom í þingboði, og minnt var á á undirbúningsfundi með aðildarfélögum í byrjun vikunnar þá er síðasti dagur til að skila tillögum fyrir Körfuknattleiksþingið föstudagurinn 24. febrúar. Öllum tillögum þarf því að skila fyrir miðnætti í dag. Vinsamlegast gætið að því að tillögur séu sendar í Word skjali á kki@kki.is.

Hægt er að óska eftir leiðsögn við uppsetningu þingtillaga hjá skrifstofu KKÍ.