21 feb. 2023

Minnt er frest til að skila tillögum fyrir Körfuknattleiksþing 2023. Eins og fram kom í þingboði, og minnt var á á undirbúningsfundi með aðildarfélögum í gær, þá er síðasti dagur til að skila tillögum fyrir Körfuknattleiksþingið föstudagurinn 24. febrúar. Vinsamlegast gætið að því að tillögur séu sendar í Word skjali á kki@kki.is.