12 feb. 2023Í kvöld leikur íslenska kvennalandsliðið sinn síðasta leik í undankeppni EM 2023 kvenna þegar liðið tekur á móti liði spánverja í Höllinni. Leikurinn verður í beinni á RÚV2. 

Spænska liðið hefur tryggt sér sæti í riðlinum og þar með sæti á EuroBasket Women í sumar, en liðið er í efsta sæti styrkleikalista Evrópu um þessar mundir. Ungverjaland er einnig öruggt með eitt af bestu 2. sætum riðlanna og þar með sæti á EM fyrir leiki kvöldsins, en þær leika gegn Rúmeníu. 

Líklegt verður að telja að Ungverjalandi sigri sinn leik í kvöld og þá verður Ísland í 3. sæti í riðlinum þar sem það á innbyrðis á Rúmeníu.

Íslenska liðið er eins skipað og í leiknum gegn Ungverjalandi á fimmtudaginn sl.:


Nafn · Lið (Landsleikir)
Agnes María Svansdóttir · Keflavík (1)
Anna Ingunn Svansdóttir · Keflavík (5)
Ásta Júlía Grímsdóttir · Valur (9)
Dagbjört Dögg Karlsdóttir · Valur (15)
Diljá Ögn Lárusdóttir · Stjarnan (5)
Elísabeth Ýr Ægisdóttir · Haukar (7)
Emma Sóldís Svan Hjördísardóttir · Haukar (3)
Eva Margrét Kristjánsdóttir · Haukar (5)
Isabella Ósk Sigurðardóttir · Njarðvík (11)
Sara Rún Hinriksdóttir · Faenza Basket Project, Ítalíu (29)
Tinna Guðrún Alexandersdóttir · Haukar (3)
Þóra Kristín Jónsdóttir · AKS Falcon, Danmörk (28)

Þjálfari: Benedikt Guðmundsson
Aðstoðarþjálfarar: Halldór Karl Þórsson og Ólafur Jónas Sigurðsson.
Sjúkraþjálfari: Sædís Magnúsdóttir · Atlas Endurhæfing
Læknir: Unnur Tara Jónsdóttir

Heimasíða keppninnar:
https://www.fiba.basketball/womenseurobasket/2023/qualifiers

#korfubolti