12 feb. 2023Í kvöld er ekki bara íslenska landsliðið með verkefni að keppa í undankeppni EuroBasket kvenna 20203 heldur er Davíð Tómas Tómasson FIBA dómari einnig með verkefni. Hann dæmir leik Svíþjóðar og Lettlands sem fram fer í Stokkhólmi. 

Meðdómarar Davíðs í kvöld eru Marek Kukelicik frá Slóvakíu sem er aðaldómari leiksins og Juozas Barkauskas frá Litháen. 

KKÍ óskar Davíð Tómasi góðs gengis í sínu verkefni í kvöld.