10 feb. 2023

KKÍ hefur borist nokkrar fyrirspurnir í dag vegna minniboltamóta helgarinnar og veðurútlits. Það er því nauðsynlegt að árétta að bæði mótin eru á dagskrá þar til annað verður gefið út. Búist er við að hitastig verði yfir frostmarki og vegir auðir, og því ætti það ekki að vera neinum sérstökum vandkvæðum bundið að komast til og frá leikstað, hvort sem er í Breiðholti eða á Selfossi.

Að venju verður fylgst með veðri og staðan tekin með Vegagerðinni í fyrramálið, laugardaginn 11. febrúar, og ef ástæða er til að fresta þá verður það tilkynnt sérstaklega.