16 jan. 2023Davíð Tómas Tómasson, einn FIBA dómara okkar, var ekki bara að dæma um helgina á VÍS bikar úrslitunum í Höllinni, heldur tilnefndi FIBA hann í verkefni í Póllandi í lok síðustu viku þar sem hann dæmdi leik í Euro Cup kvenna milli VBW Arka Gdynia gegn LDLC Asvel Fémin frá Lyon í Frakklandi: Leikurinn fór fram í Gdynia í Póllandi.
Leiknum lauk með sigri gestana 72:91.
Meðdómarar hans voru þau Nikola Bejat frá Noregi og Ritvars Helmstein frá Lettlandi, en Nikola hefur dæmt nokkrum sinnum landsleiki hér heima sem dæmi.
Framundan hjá Davíð Tómasi er síðan leikur í undankeppni EM kvenna, landsleikur Svíþjóðar og Lettlands sem fram fer í Stokkhólmi þann 12. febrúar.