14 jan. 2023

Í dag verða leiknir þrír bikarúrslitaleikir, en ásamt bikarúrslitum meistaraflokka karla og kvenna er leikið í úrslitum 9. flokks drengja.

Dagurinn hefst á áðurnefndum úrslitaleik 9. flokks drengja, en þar mætast KR og Stjarnan kl. 10:15. Leikurinn verður í beinu streymi á Youtube síðu KKÍ.

VÍS bikarúrslit kvenna verða leikin kl. 13:30, en þar mætast lið Hauka og Keflavíkur. Haukar unnu 1. deildarlið Snæfells í undanúrslitum 98-62 og lið Keflavíkur vann 1. deildarlið Stjörnunnar 100-73.

VÍS bikarúrslit karla hefjast kl. 16:15, en þar mætast Stjarnan og Valur. Stjarnan sigraði Keflavík í jöfnum og spennandi leik í undanúrslitum 89-83 og Valsmenn sigruðu Hött sannfærandi 47-74.

VÍS bikarúrslitaleikir meistaraflokka verða í beinni útsendingu á RÚV.

Miðasala á leikina er á Stubb.

Leikskrá yfir hátíðana með öllum leikmannalistum liða er að finna hérna