14 jan. 2023

Haukar urðu í dag VÍS bikarmeistarar kvenna eftir 94-66 sigur á Keflavík í úrslitaleik í Laugardalshöll.

Sólrún Inga Gísladóttir var valin besti leikmaður úrslitaleiksins, en hún skilaði 20 stigum, 7 stoðsendingum, 7 fráköstum og skoraði úr 6 af 8 skotum sínum.

Kristján Gíslason frá VÍS afhenti Haukum 1.000.000 kr. verðlaunafé fyrir sigurinn, sem Bragi Magnússon formaður Hauka tók við í leikslok. VÍS afhenti einnig Keflavík ávísun að upphæð 500.000 kr. fyrir annað sætið.

Til hamingju Haukar!

Myndir: Bára Dröfn/karfan.is