![VÍS bikarúrslit yngri flokka hefjast í dag!](/library/Myndir/VIS-BIKARINN/2023/3%20-%20Copy%20(1).png)
12 jan. 2023
Tveir VÍS bikarúrslitaleikir yngri flokka verða leiknir í Laugardalshöll í dag.
Fyrri leikurinn hefst kl. 17:15 og er bikarúrslitaleikur 10. flokks drengja þar sem A og B lið Stjörnunnar mætast. Leikurinn verður í beinu streymi á Youtube síðu KKÍ.
Klukkan 20:00 mætast Stjarnan og Njarðvík í bikarúrslitum 10. flokks stúlkna. Leikurinn verður í beinu streymi á Youtube síðu KKÍ.
Miðasala á leikina er á Stubb.
Leikskrá yfir hátíðana með öllum leikmannalistum liða er að finna hérna