10 jan. 2023

Hin árlega og skemmtilega VÍS bikarvika hefst í dag með undanúrslitaleikjum kvenna.

Framundan eru 12 leikir á sex dögum, þar sem tíu bikarmeistarar verða krýndir frá 9. flokki upp í meistaraflokk. Eins og áður sagði hefst vikan á undanúrslitaleikjum kvenna. Fyrri leikurinn hefst kl. 17:15, en þar er viðureign 1. deildarliðs Snæfells og Subwaydeildarliðs Hauka. Í seinni leiknum sem hefst kl. 20:00 eigast við 1. deildarlið Stjörnunnar og Subwaydeildarlið Keflavíkur, en bæði liðin sitja í efsta sæti sinna deilda.

VÍS bikarúrslitaleikur kvenna fer fram laugardaginn 14. janúar kl. 13:30, en þar mætast þau tvö félög sem sigra sína undanúrslitaleiki.

Leikskrá yfir hátíðana með öllum leikmannalistum liða er að finna hérna