19 des. 2022

Dregið var í undanúrslit VÍS bikarsins í Laugardalshöll í dag. Hjá konunum voru fjögur lið í skálinni, Haukar, Keflavík, Snæfell og Stjarnan. Hjá körlunum voru liðin fjögur Höttur, Keflavík, Stjarnan og Valur.

Viðureignirnar drógust svo:

VÍS bikar kvenna (undanúrslit 10. janúar 2023)
Haukar-Snæfell
Stjarnan-Keflavík

VÍS bikar karla (undanúrslit 11. janúar 2023)
Höttur-Valur
Stjarnan-Keflavík