14 des. 2022

Sara Rún Hinriksdóttir og Elvar Már Friðriksson hafa verið valin körfuknattleikskona og körfuknattleikskarl ársins 2022 af KKÍ. Þetta er í 25. skipti sem valið er tvískipt milli karla og kvenna eða allt frá árinu 1998.

Körfuknattleikskona og karl ársins eru valin í kosningu af stjórn og starfsmönnum KKÍ, afreksnefnd KKÍ og landsliðsþjálfurum. Bæði voru þau ríkjandi Körfuknattleiks karl og kona síðsta árs. Elvar Már er nú að fá tilnefninguna í annað sinn og Sara Rún er að hljóta nafnbótina í þriðja sinn og þriðja árið í röð.

Val á körfuknattleikskonu ársins 2022:
1. Sara Rún Hinriksdóttir   
2. Hildur Björg Kjartansdóttir   
3. Þóra Kristín Jónsdóttir
 
Aðrar sem fengu atkvæði í stafrófsröð:
Anna Ingunn Sveinsdóttir, Birna Valgerður Benónýsdóttir, Dagný Lísa Davíðsdóttir, Eva Margrét Kristjánsdóttir, Helena Sverrisdóttir, Isabella Ósk Sigurðardóttir og Vilborg Jónsdóttir.

Sara Rún Hinriksdóttir · Faenza Basket Project, Ítalíu
Sara Rún er „Körfuknattleikskona ársins“ árið 2022 þriðja árið í röð. Sara Rún sem er uppalin með Keflavík og lék eitt tímabil með Haukum hér heima hefur einnig leikið í háskóla í Bandaríkjunum og leikið undanfarin ár í Evrópu sem atvinnumaður. Sara Rún átti gott tímabil í fyrra með liði sínu í Rúmeníu og var ein af bestu leikmönnum síns liðs. Hún og færði sig til Ítalíu fyrir þetta tímabil til Faenza Basket Project í Serie A. Þar hefur Sara Rún átt góða leiki, er með 8.3 stig að meðatali í leik eftir 10 leiki og hefur verið helsti varnarmaður síns liðs og verið sett sérstaklega til höfuðs helstu sóknarmönnum andstæðingana sem sýnir hversu góður varnarmaður hún er. Sara Rún hefur verið burðarás íslenska kvennalandsliðsins og verið að leiða stigaskorun liðsins að undanförnu í hverjum leiknum á fætur öðrum og undirstrikaði það rækilega í fræknum sigri á Rúmeníu nú í nóvember, þar sem hún skoraði 33 stig og setti um leið íslenskt landsliðsmet leikmanns í einum leik í sögu karla- og kvennalandsliða KKÍ.

Landsliðið lék að tvo landsleiki í nóvember í undankeppni EM kvenna 2023 og þar var Sara Rún öflug að venju og fundið leiðir að körfunni gegn sterkum andstæðingum. Sara Rún hefur verið ofarlega í öllum helstu tölfræðiþáttum í þessum leikjum og leiðir landsliðið í stigaskorun (10. sæti yfir alla keppnina), fráköstum, stoðsendingum og framlagi sem er frábært afrek. Sara Rún hefur hefur sífellt verið að taka framförum í sínum leik og verið að taka sér leiðtogahlutverk með landsliðinu og því ljóst að á næstu árum verður hún áfram ein af mikilvægustu leikmönnum landsliðsins í að leiða ungt lið áfram í næstu verkefnum.

Hildur Björg Kjartansdóttir · Valur
Hildur Björg hefur leikið sem atvinnumaður á Spáni á síðustu leiktíð og það sem af er með liði í Belgíu, en er nú nýkomin heim til liðs við Val, til liðsins sem hún varð íslandsmeistari með 2021. Hildur Björg var landsleikjahæsti leikmaður íslenska landsliðsins sem lék í nóvemberglugganum þó hún sé sjálf ung að árum og sýndi hversu öflug hún er í sigrinum glæsilega gegn Rúmeníu í Laugardalshöllinni, en þegar mest á reyndi setti hún mikilvægar körfur og lék hörku vörn gegn hávöxnu liði gestanna sem reyndist dýrmætt. Hildur Björg er einnig í öðru sæti yfir tölfræðiflokka yfir skoruð stig, fráköst og framlag að meðaltali í leik með landsliðinu sem sýnir mikilvægi hennar fyrir liðið í vörn og sókn. Hildur Björg verður áfram ein af burðarásum landsliðsins næstu ár, en íslenska liðið er það yngsta í evrópukeppnninni sem nú stendur yfir.

Þóra Kristín Jónsdóttir · AKS Falcon, Danmörku
Þóra Kristín, sem er uppalin með Haukum, hélt utan fyrir síðustu leiktíð til náms og er nú á sínu öðru ári með AKS Falcon í Kaupmannahöfn. Þóra Kristín hefur verið í leiðtogahlutverki með sínu danska liði frá því hún gekk til liðs við liðið í fyrra og átt stóran þátt í því að AKS vann bæði bikarinn sem og danska meistaratitilinn á síðustu leiktíð. Með landsliðinu er Þóra Kristín ein af reynslumeiri leikmönnum liðsins sem er ungt að árum líkt og hún sjálf. Þóra Kristín hefur verið byrjunarliðsmaður landsliðsins og stýrt sóknarleik og verið helsti boltabavörður liðsins sem er ábyrgðarfull leikstaða og henni hefur hún skilað mjög vel og ljóst að Þóra Kristín verður áfram á næstu árum mikilvæg fyrir landsliðið og gengi þess í komandi keppnum.


Val á körfuknattleikskarli ársins 2022:
1. Elvar Már Friðriksson     
2. Tryggvi Snær Hlinason   
3. Ægir Þór Steinarsson

Aðrir sem fengu atkvæði í stafrófsröð:
Jón Axel Guðmundsson, Kári Jónsson, Kristófer Acox og Martin Hermannsson.

Elvar Már Friðriksson · BC Rytas Vilnius, Litháen
Elvar Már er að hljóta nafnbótina „Körfuknattleiksmaður ársins“ í annað sinn og annað árið í röð. Elvar Már sem valinn var „MVP - Leikmaður ársins“ í litháensku deildinni fyrir tveim árum hélt á síðastliðnu tímabili til Belgíu þar sem Elvar Már gerði samning við Antwerp Giants í Belgíu. Þar átti hann mjög gott tímabil með stærsta liði Belgíu og var byrjunarliðs bakvörður og stýrði sóknarleik liðsins. Í lok þess tímabils fór hann stutt til Ítalíu áður en leiktíðinni lauk. Fyrir þetta tímabil voru það hinsvegar svo litháesku meistararnir í Rytas Vilnius sem sóttu Evlvar og tryggðu sér starfskrafta hans og hefur hann verið að stýra leik þeirra með glæsibrag og leiðir liðið sitt í stoðsendingum en Rytas Vilnius sem er með feikisterkt lið og ætlar sér mikið. Liðið leikur einnig í evópukeppninni, FIBA EuroCup, samhliða deildinni heima fyrir, þar sem liðið er í öðru sæti deildarinnar og er líklegt til afreka í vor í úrslitakeppninni.

Með íslenska landsliðinu hefur Elvar Már verið leiðtogi liðsins og hefur hann tekið þátt í öllum leikjum liðsins á undanförnum árum og heilt yfir verið meðal bestu manna liðsins í hverju verkefninu á fætur öðru. Hann átti stóran þátt í því að koma liðinu inn í undankeppni HM á sl. tveim árum í gegnum ýmsa riðla og forkeppnir sem hefur reynst gríðarlega dýrmætt og komið landsliðinu á góðan stað á ný. Elvar Már átti mjög góða leiki fyrir Ísland á þessu ári þegar Ísland náði í mikilvæg stig, til dæmis gegn Ítalíu, Hollandi og Úkraínu hér heima í leikjum sem var mikilvægt að vinna. Þar lék Elvar Már frábærlega og var óstöðvandi í sóknarleik Íslands sem gerði andstæðinga Íslands ráðþrota í hverjum leiknum á fætur öðrum. Frábær frammistaða hans í leikjunum tveim gegn Ítalíu varð til þess að lið í efstu deild, Derthona, keypti upp samning hans við Antwerp Giants í lok tímabilsins sem er til marks um hversu mikla athygli hann fékk á árinu. Elvar Már er í 28. sæti yfir flest framlagsstig í undankeppni HM í evrópu og 9. sæti yfir bakverði sem segir talsvert um framlag hans til landsliðsins.

Tryggvi Snær Hlinason · Basket Zaragoza, Spánn
Tryggvi Snær er ungur að árum og tekur framförum ár eftir ár og er nú á sínu sjötta ári sem atvinnumaður í efstu deild á Spáni. Eftir að hafa leikið með Valencia og Monbus Obradoiro færði hann sig yfir til Zaragoza og er nú í herbúðum liðsins fjórða árið í röð. Þar hefur Tryggvi Snær átt fast sæti og leikið stórt hlutverk í liðinu og skilað stærra og stærra framlagi milli ára. Með landsliðinu hefur Tryggvi Snær leikið gríðarlega vel og blómstrað í vörn og sókn sem er stór þáttur í velgengni liðsins að undanförnu. Bæði hefur Tryggvi Snær verið meðal hæðstu framlögin í stigaskorun og fráköstum og þá hjálpar hann liðsfélögum sínum mikið um leið þar sem andstæðingar Íslands leggja oft á tíðum ofuráherslu á að stöðva Tryggva með misgóðum árángri sem býr til fjölbreyttari ógn í sókn Íslands. Tryggvi Snær setti evrópskt met í framlagi í einum leik í undankeppni FIBA í febrúar þegar hann var með 50 framlagsstig og evrópskur körfuboltaheimur tók andköf. Tryggvi leiðir einni alla evrópsku undankeppnina í framlagsstigum að meðaltali í leik um þessar mundir en hann á þrjá hæstu framlagsleiki á topp 11 í núverandi HM-undankeppninni. Tryggvi verður lykilmaður á næstu árum fyrir Ísland og eru engin takmörk á því hversu langt hann fer með sinn feril.

Ægir Þór Steinarsson · CB Lucentum Alicante, Spánn
Ægir Þór leikur á Spáni í næst efstu deild en þetta er hans þriðja lið þar í landi á sl. fjórum árum þar sem hann leikur á Spáni sem atvinnumaður. Ægir Þór hefur verið sínum liðum þar í landi mikilvægur leikmaður og byrjunarliðsmaður sem bakvörður sinna liða sem og með íslenska landsliðinu. Ægir Þór leiðir íslenska liðið í stoðsendingum að meðaltali eftir átta leiki og af þeim sem leikið hafa í síðastliðnum þrem landsliðsgluggum. Varnar- og sóknarhæfileikar Ægis Þórs eru vanfundnir en það hefur verið hans helsta vopn að atast í bakvörðum andstæðinganna og stýra hröðum sóknarleik landsliðsins upp völlinn á móti og þar standast fáir Ægir Þór snúning. Ægir hefur verið einn af leiðtogum landsliðsins innan sem utanvallar sem er mjög mikilvægt og er gríðarlega góður liðsfélagi að hafa. Þá er Ægir Þór með landsleikjahæstu mönnum núverandi leikmanna Íslands og á stóran þátt í velgengi liðsins að undanförnu þar sem Ægir Þór hefur tekið þátt í öllum leikjum Íslands á síðast liðnum árum og hjálpað liðinu við að komast áfram í undankeppni HM í síðustu landsliðsgluggum. 


Körfuboltafólk ársins frá árinu 1998: 
1998: Helgi Jónas Guðfinnsson og Anna María Sveinsdóttir
1999: Herbert Arnarson og Guðbjörg Norðfjörð
2000: Ólafur Jón Ormsson og Erla Þorsteinsdóttir
2001: Logi Gunnarsson og Kristín Björk Jónsdóttir
2002: Jón Arnór Stefánsson og Birna Valgarðsdóttir
2003: Jón Arnór Stefánsson og Signý Hermannsdóttir
2004: Jón Arnór Stefánsson og Birna Valgarðsdóttir
2005: Jón Arnór Stefánsson og Helena Sverrisdóttir
2006: Brenton Birmingham og Helena Sverrisdóttir
2007: Jón Arnór Stefánsson og Helena Sverrisdóttir
2008: Jón Arnór Stefánsson og Helena Sverrisdóttir
2009: Jón Arnór Stefánsson og Helena Sverrisdóttir
2010: Jón Arnór Stefánsson og Helena Sverrisdóttir
2011: Jakob Örn Sigurðarson og Helena Sverrisdóttir
2012: Jón Arnór Stefánsson og Helena Sverrisdóttir
2013: Jón Arnór Stefánsson og Helena Sverrisdóttir
2014: Jón Arnór Stefánsson og Helena Sverrisdóttir
2015: Jón Arnór Stefánsson og Helena Sverrisdóttir
2016: Martin Hermannsson og Gunnhildur Gunnarsdóttir
2017: Martin Hermannsson og Hildur Björg Kjartansdóttir
2018: Martin Hermannsson og Hildur Björg Kjartansdóttir
2019: Martin Hermannsson og Helena Sverrisdóttir
2020: Martin Hermannsson og Sara Rún Hinriksdóttir
2021: Elvar Már Friðriksson og Sara Rún Hinriksdóttir
2022: Elvar Már Friðriksson og Sara Rún Hinriksdóttir
 
Oftast valin Körfuboltamaður og Körfuboltakona ársins:*
12 Jón Arnór Stefánsson (2002, 2003, 2004, 2005, 2007, 2008, 2009, 2010, 2012, 2013, 2014, 2015)
12 Helena Sverrisdóttir (2005, 2006, 2007, 2008, 2009, 2010, 2011, 2012, 2013, 2014, 2015, 2019)
 5 Martin Hermannsson (2016, 2017, 2018, 2019, 2020)
 4 Jón Kr. Gíslason (1987, 1989, 1992, 1993)
 3 Sara Rún Hinriksdóttir (2020, 2021, 2022)
 3 Kristinn Jörundsson (1973, 1975, 1977)
 2 Elvar Már Friðriksson (2021, 2022)
 2 Hildur Björg Kjartansdóttir (2017, 2018)
 2 Jón Sigurðsson (1976, 1978)
 2 Valur Ingimundarson (1984, 1988)
 2 Guðmundur Bragason (1991, 1996)
 2 Anna María Sveinsdóttir (1994, 1998)
 2 Birna Valgarðsdóttir (2002, 2004)
 
*Valið hefur verið tvískipt síðan 1998 en frá 1973 til og með 1997 var aðeins valin einn aðili, karl eða kona, en síðan þá hafa verið valin Körfuknattleiksmaður og Körfuknattleikskona ársins.


#korfubolti