8 nóv. 2022

 

Samræmd viðbragðsáætlun fyrir íþrótta- og æskulýðsstarf

Áætlunin var unnin í sameiningu af Bandalagi íslenskra skáta (BÍS), Íþróttabandalagi Reykjavíkur (ÍBR), Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands (ÍSÍ), Kristilegu félagi ungra manna og kvenna (KFUM og K), Samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs, Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu, Ungmennafélagi Íslands (UMFÍ) og Æskulýðsvettvanginum (ÆV).

Sigurbjörg Sigurpálsdóttir samskiptaráðgjafi leiddi gerð áætlunarinnar í samstarfi við vinnuhóp sem ofangreind samtök áttu fulltrúa sinn í.

Viðbragðsáætlunin veitir íþrótta- og æskulýðsfélögum samræmdar leiðbeiningar þegar erfið og flókin mál af ýmsum toga koma upp. Markmið viðbragðsáætlunar er að færa aðilum innan íþrótta- og æskulýðsfélaga og samtaka um allt land áætlun vegna atvika og áfalla sem upp geta komið í slíku starfi. Best er að viðbrögð allra íþrótta- og æskulýðsfélaga séu eins. 

Í áætluninni er að finna verkferla sem fylgja skal þegar upp koma atvik eða áföll í íþrótta- og æskulýðsstarfi. Viðbragðsáætlunin er einföld og á við í öllum tilvikum, óháð því um hvaða aðila og atvik er um að ræða. Dæmi um atvik sem að viðbragðsáætlunin nær til eru slys, veikindi, náttúruhamfarir, einelti og ofbeldi. Einnig eru þar gagnlegar upplýsingar um meðal annars ferðalög, hinseginleika og fjölmenningu og inngildingu í félagsstarfi, öryggismál og skráningu atvika.

Áætlunin nær yfir alla starfsemi íþrótta- og æskulýðsfélaga á landinu, aðildarfélaga, þátttakendur, stjórnendur, yfirmenn, starfsfólk, sjálfboðaliða og aðra ábyrgðaraðila innan félaganna. Þó að starfsemin geti verið misjöfn á milli félaga þá er mikilvægt að öllum líði vel við leik og störf í íþrótta- og æskulýðsstarfi. Allt fólk á að geta gengið að því vísu að félagsstarf þess bjóði upp á öruggt umhverfi og að fólk fái að vera óáreitt í félagsstarfinu, óháð aldri, kynferði eða stöðu að öðru leyti. Sömuleiðis á allt fólk að geta leitað réttar síns ef atvik koma upp, án þess að óttast afleiðingar. Ýmis atvik geta komið upp og mikilvægt er að geta brugðist við á sem bestan máta. Erfitt er að gera öllum mögulegum atvikum skil en mikilvægt er að hafa einhverjar grunnreglur til að fylgja.

Verkefni þetta reyndist flóknara og seinlegra en í upphafi var áætlað enda margir hagsmunahópar sem að þessu standa og umfjöllunarefnin mörg hver snúin. Íþróttahreyfingin hefur í mörg ár verið með viðbragðsáætlanir við óvæntum atburðum en nauðsynlegt var orðið að uppfæra og endurskoða ýmis umfjöllunarefni slíkra áætlana.

Við erum þakklát fyrir þá miklu vinnu sem í hefur verið lagt við undirbúning, vinnslu, yfirlestur og útgáfu nýju áætlunarinnar og vonum að þessi samræmda viðbragðsáætlun gagnist íþrótta- og æskulýðshreyfingunni vel þegar bregðast þarf við atvikum sem upp koma í starfinu.

Við viljum biðja ykkur um að hjálpa okkur að koma viðbragðsáætluninni á framfæri við félög innan ykkar vébanda svo hún gagnist sem flestum í okkar starfi. Það er okkar allra hagur að allir í hreyfingunni viti af þessu úrræði og kynni sér innihald áætlunarinnar, ekki síst yngri iðkendur.

Þar sem skjalið sjálft er of stórt til að senda það með tölvupósti þá er hér vefslóð á viðbragðsáætlunina á heimasíðu Samskiptaráðgjafa og eins á verkfærakistu samskiptaráðgjafa þar sem finna má fleiri leiðbeinandi gögn og eyðublöð er varða málaflokkinn.

Viðbragðsáætlunin.

Verkfærakista samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs.