8 nóv. 2022

Íslenska karlalandsliðið leikur tvo landsleiki í landsliðsglugganum sem nú er hafinn í undankeppni HM 2023. Landsliðið byrjar á æfingum hér heima og hefur leik á föstudaginn kemur 11. nóvember þegar Georgía kemur í heimsókn í Laugardalshöllina og leika liðin kl. 19:30. Leikurinn verður í beinni á RÚV. Miðasala gengur vel á STUBB appinu og eru takmarkað magn miða eftir.
 
Seinni leikurinn fer fram ytra mánudaginn 14. nóvember gegn Úkraínu og verður hann leikinn í Riga í Lettlandi og hefst hann kl. 14:00 að íslenskum tíma (16:00 í Lettlandi) og verður í beinni útsendingu einnig á RÚV. 
 
Þetta eru virkilega mikilvægir leikir sem framundan eru upp á framhaldið en Ísland getur styrkt stöðu sína gríðarlega í keppninni með góðum úrslitum.
Bæði lið andstæðinga Íslands eru fyrnasterk og léku í haust bæði lokamóti EM, EuroBasket 2022, þar sem bæði lið fóru í 16-liða úrslit.

Craig, Baldur Þór og Hjalti Þór hafa valið 16 manna hóp sem þeir velja síðan sitt 12 manna lið fyrir leikina tvo á næstunni:
 
Íslenski landsliðsæfingahópurinn er skipaður eftirtöldum leikmönnum: (landsleikir í sviga)

Elvar Már Friðriksson · Rytas Vilnius, Litháen (61)
Haukur Helgi Briem Pálsson · Njarðvík (72)
Hilmar Pétursson · Muenster, Þýskalandi (2)
Hilmar Smári Henningsson · Haukar (4)
Hörður Axel Vilhjálmsson · Keflavík (95)
Jón Axel Guðmundsson · Victoria Libertas Pesaro, Ítalíu (21)
Kári Jónsson · Valur (28)
Kristófer Acox · Valur (48)
Orri Gunnarsson · Haukar (Nýliði)
Ólafur Ólafsson · Grindavík (50)
Ragnar Ágúst Nathanaelsson · Hamar (56)
Sigtryggur Arnar Björnsson · Tindastóll (24)
Styrmir Snær Þrastarson · Þór Þorlákshöfn (5)
Tryggvi Snær Hlinason · Basket Zaragoza, Spáni (54)
Ægir Þór Steinarsson · CB Lucentum Alicante, Spáni (76)
Þorvaldur Orri Árnason · KR (Nýliði)
 
Meiddir:
Þórir G. Þorbjarnarson, Ovideo á Spáni og Martin Hermannsson, Valencia á Spáni, eru báðir meiddir að þessu sinni.
 
Þjálfari: Craig Pedersen
Aðstoðarþjálfari: Hjalti Þór Vilhjálmsson og Baldur Þór Ragnarsson
Sjúkraþjálfarar: Valdimar Halldórsson og Halldór Fannar Júlíusson · Atlas Endurhæfing
Læknir: Hallgrímur Kjartansson
Fararstjórn og liðsstjórn: Kristinn Geir Pálsson, Jón Bender og Sigrún Ragnarsdóttir.
 
Fyrirkomulag · L-riðill
Ísland var upprunalega í H-riðli með Rússlandi, Ítalíu og Hollandi og komast áfram í aðra umferð. Liðin sem sameinast í nýjum sex liða riðli eru Spánn, Georgía og Úkraína. Þrjú efstu þessara liða eftir aðra umferð þar sem liðin leika gegn hinum nýju liðum hvert heima og að heiman, leika á HM næsta sumar. Alls verða það 12 evrópsk lið sem leika á HM sem fram fer í Japan, Indónesíu og á Filipseyjum.
 
Allt um leikina, mótið og linkur á heimasíðu keppninnar er að finna hér á KKI.is:
https://www.kki.is/landslid/karlar/hm-2023/