3 nóv. 2022

Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í fjórum agamálum sem henni hafði borist til úrlausnar.

Agamál 26/2022-2023

Með vísan til ákvæðis b. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Daði Steinn Arnarsson, sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik Þórs Þorlákshafnar/Hamars og ÍR B, 12. flokki karla, sem fram fór þann 25. október 2022.

Agamál 27/2022-2023

Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Ragnar Bragason, leikmaður ÍR, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Grindavík gegn ÍR, sem fram fór þann 27 október 2022.

Agamál 28/2022-2023

Með vísan til ákvæðis b. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Ísak Máni Wíum, þjálfari ÍR, sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik Grindavík gegn ÍR, sem fram fór þann 27 október 2022.

Agamál 29/2022-2023

Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Haukur Hreinsson, leikmaður Hrunamanna, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Hrunamanna gegn Álftanes, sem fram fór þann 28 október 2022.