31 okt. 2022

Skráning er hafin fyrir 3. umferð í 8. flokki drengja og stúlkna og stendur skráning til miðnættis á morgun, þriðjudaginn 1. nóvember. Ekki verður tekið við skráningu eftir þann tíma. 3. umferð í 8. flokki fer fram 26.-27. nóvember. Skráningu í 2. umferð MB10 ára drengja og stúlkna lýkur sömuleiðis á morgun.

Við viljum forðast tvískráningar, svo við biðjum ykkur um að fara yfir fyrri skráningu. Einungis þarf að skrá ný lið til keppni og er það gert í gegnum FIBA Organizer eins og með önnur lið sem skráð eru til leiks í Íslandsmóti. Ef fækka á skráðum liðum vinsamlegast sendið tölvupóst á solveig@kki.is.