27 okt. 2022

 

Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í tveimur agamálum sem henni hafði borist til úrlausnar.

Agamál 24/2022-2023

Með vísan til ákvæðis n. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Viðar Örn Hafsteinsson, sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar eftir leik Hattar og Njarðvíkur, Subwaydeild karla, sem fram fór þann 13. október 2022.

Úrskurð má lesa í heild sinni hér

Agamál 25/2022-2023

Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Emil Barja, leikmaður Hauka, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Tindastóls gegn Haukum, sem fram fór þann 17 október 2022.