20 okt. 2022

Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í Sjö agamálum sem henni hafði borist til úrlausnar.

Agamál 17/2022-2023

Með vísan til ákvæðis b. liðar 1. mgr. 13. gr., sbr. 4. mgr. 6. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Snorri Þorvaldsson, sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik ÍA og Hamars, 1. deild mfl. karla, sem fram fór 7. október 2022.

Agamál 18/2022-2023

Með vísan til ákvæðis c. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Gerald Robinson, sæta tveggja leikja banni vegna háttsemi sinnar í leik Álftaness og Selfoss, 1. deild mfl. karla, sem fram fór 10. október 2022.

Agamál 19/2022-2023

Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Kristófer Kári Arnarsson, leikmaður Hauka, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Njarðvík gegn Haukum, sem fram fór þann 11 október 2022.

Agamál 20/2022-2023

Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Júlíus Duranona, leikmaður ÍA, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Vals gegn ÍA, sem fram fór þann 11 október 2022.

Agamál 21/2022-2023

Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Frosti Sigurðsson, leikmaður Keflavíkur, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Keflavíkur gegn Skallagrím, sem fram fór þann 11 október 2022.

Agamál 22/2022-2023

Með vísan til ákvæðis b. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Hörður Unnsteinsson, þjálfari KR, sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik Stjarnan gegn KR, sem fram fór þann 12 október 2022.

Agamál 23/2022-2023

Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Baldur Orrason Gröndal, leikmaður Ármanns, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Ármann gegn Fjölni, sem fram fór þann 12 október 2022.