13 okt. 2022

Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í þremur agamálum sem henni hafði borist til úrlausnar

Agamál 14/2022-2023

Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Kristófer Acox, leikmaður Vals, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Vals gegn Stjörnunni, sem fram fór þann 6 október 2022.

 Agamál 15/2022-2023

Með vísan til ákvæðis c. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Adomas Drungilas, sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik Keflavíkur og Tindastóls, Subwaydeild karla, sem fram fór 7. október 2022.

Agamál 16/2022-2023

Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Mirza Sarajlija, leikmaður Hamars, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik ÍA gegn Hamri, sem fram fór þann 7 október 2022.