12 ágú. 2022Um helgina fer fram önnur æfingahelgi af þrem sumarið 2022 fyrir U14 æfingahópa.

U14 æfingahópur í ár eru fyrir ungmenni fædd 2008. Það eru yfirþjálfararnir sem boða leikmenn til æfinga, en um 50 leikmenn fá boð úr þessum eina árgangi um að mæta til æfinga og því eingöngu boðaðir leikmenn sem fengu boð á sínum tíma sem mæta til leiks.

Yfirþjálfarar Afreksbúða 2022 er Karl Ágúst Hannibalsson hjá drengjum og Andrea Björt Ólafsdóttir hjá stúlkum en þau fá til sín reynda aðstoðarþjálfara á hverri helgi. Æft verður tvisvar hvorn dag að venju en um helgina fara æfingar fram í íþróttahúsinu í Dalhúsum, Grafarvogi laugardag og sunnudag 13.-14. ágúst.

Allar nánari upplýsingar má sjá hérna: www.kki.is/u14

Leikmenn æfa á eftirfarandi tímum um helgina:

Drengir 13.-14. ágúst
Drengir · æfingahelgi 2  ·  Íþróttahús Fjölnis, Dalhúsum
Laugardagur 13. ágúst · kl. 09:00-11:00 + 13:00-15:00
Sunnudagur  14. ágúst · kl. 09:00-11:00 + 13:00-15:00

Stúlkur 13.-14. ágúst
Stúlkur · æfingahelgi 2  ·  Íþróttahús Fjölnis, Dalhúsum
Laugardagur 13. ágúst · kl. 11:00-13:00 + 15:00-17:00
Sunnudagur  14. ágúst · kl. 11:00-13:00 + 15:00-17:00


Þriðja æfingahelgin: 
Fer fram í lok ágúst helgina 27.-28. ágúst og verður á Álftanesi í Garðabæ.