12 ágú. 2022

Þjálfaranámskeið KKÍ 1A verður haldið helgina 19.-21. ágúst nk., en skráning á námskeiðið er opin öllum áhugasömum.

KKÍ þjálfari 1 skiptist í þrjú námskeið A, B og C. KKÍ 1A er skipt upp í nokkra hluta, Áhersla er lögð á þjálfun minnibolta, byrjenda og barna 12 ára og yngri. Mikil áhersla er lögð á kennslu á helstu grunnþáttum eins og skotum, sendingum, fótavinnu, knattraki og á boltaæfingar. Áhersla er lögð á að kenna yngstu iðkendum grunnþætti í gegnum leiki. Á sunnudegi þá þjálfa þátttakendur eina stöð í úrvalsbúðum KKÍ. Þetta verður kynnt nánar við upphaf námskeiðs. 

Þátttökugjald fyrir KKÍ 1A er 26.000 kr. ef skráning og greiðsla klárast í síðasta lagi 12. ágúst, en eftir það hækkar námskeiðsgjald upp í 38.000 kr.

Hægt er að skrá sig hérna.