14 júl. 2022U20 ára landslið karla hélt af stað um miðjan dag í gær til Tibilisi í Georgíu þar sem EM 2022, FIBA European Championship, fer fram en strákarnir leika í B-deild Evrópumótsins.

Ísland hefur leik í A-riðli og leikur gegn Rúmeníu, Hollandi, Lúxemborg og Eistlandi áður en leikið verður um sæti en keppni hefst á morgun föstudag í öllum riðlum.

Hægt er að fylgjast með lifandi tölfræði og beinum útsendingum frá mótinu í opnu streymi á heimasíðu keppninnar hér fyrir neðan:
Heimasíða keppninnar: https://www.fiba.basketball/europe/u20b/2022

Landslið U20 karla
Ástþór Atli Svalason · Valur
Eyþór Lár Bárðason · Tindastóll
Friðrik Anton Jónsson · Álftanes
Hilmir Hallgrímsson · Vestri
Hugi Hallgrímsson · Vestri
Ólafur Björn Gunnlaugsson · ÍR / Florida Southern, USA
Ólafur Ingi Styrmisson · Fjölnir
Óli Gunnar Gestsson · Selfoss
Orri Gunnarsson · Haukar
Sigurður Pétursson · Breiðablik
Sveinn Búi Birgisson · Valur
Þorvaldur Árnason · KR

Þjálfari: Baldur Þór Ragnarsson
Aðstoðarþjálfari: Pétur Már Sigurðsson
Sjúkraþjálfarar: Andrés Nieto Palma 
Læknir og fararstjóri: Hallgrímur Kjartansson